14. janúar 2009 klukkan 10:27
03. desember 2008 klukkan 22:38
Ég veit nú svosem ekkert hvað ég get sagt. Það er ekkert merkilegt búið að ske í mínu lífi síðan síðast. Kallinn er búin að vera út á sjó síðan gvuð má vita hvenar þannig að það eru bara búin að vera ég og Hákon heima. Mamma er nú að vísu rosa dugleg að koma í heimsókn til okkar. Ég er búin að gera aðventukransinn minn og er hann ekkert smá flottur þó ég segi sjálf frá. Við erum komin með rúmið hans Víðis og er það búið að vera inní stofu síðan við fengum það fyrir rúmri viku síðan. Mínir heittelskuðu bræður fóru í bæinn þegar ég var að skutla Víði og pabba útá sjó og tók Jón Ingi kerruna með og báru þeir rúmið inn fyrir mig og var ég að setja það loksins inní herbergi áðan og shit hvað efri dýnan var ógeðslega þung ég hélt að ég myndi týna lífinu við að koma henni á sinn stað. Í alvörunni ég festist næstum undir því áðan þegar ég var að henda henni á neðri hlutann. Hákon er búin að vera lasin síðan ég kom heim af kvöldvakt á mánudaginn. Elvar var að passa hann og tilkynnti mér að hann væri orðin veikur þegar ég kom heim og er hann ekkert að hressast, hann er með ógeðslegan hósta, kvef og hálsbólgu en hann er ekki með neinn rosalegan hita, hann rokkar á milli. Hann sefur til 10 eða 11 á daginn sem er ekki líkt honum, hann er alltaf vaknaður fyrir 7 á morgnana. Ég er gjörsamlega að morkna hérna heima, en að vísu þá get ég þrifið og þveigið allt sem þarf að þvo og gera fyrir jólin.
Nú er ég hætt og farin að taka úr þvottavélinni og þurrkaranum og setja á snúruna, ganga frá þvottinum og setja í aðra vél og svo heldur hringurinn áfram
eintóm hamingja hjá Nunnuni þessa daga.
En þangað til næst kveður nunnan í kút.
30. október 2008 klukkan 16:52
Haldiði að nunnan hafi ekki farið á spítalann á sunnudagskvöldið. Jú ég endaði þar víst. Ég var með svo mikinn verk í bringunni og átti erfitt með að anda þannig að litli bróðir minn þurfti að skutla mér á sjúkrahúsið. Og var ég send í hjartalínurit og allann pakkan en ég fékk bara pillur og send heim þar sem kom ekkert útur hjartalínuritinu. Svo fór ég aftur á þriðjudagskvöld og kom litli bróðir minn aftur til að skutla stóru systir. En það kom ekkert útur því heldur þannig að ég var ekki að var ekki að fá hjartaáfall, ég er nú enþá á lífi
Ég fór svo í blóðprufu í gær og þurfti að taka strætó því að bíllinn var á verkstæði. Svo þurfti ég að labba alla leið heim því að ég nennti ekki að bíða eftir strætó. Ég átti að fá útur blóðprufunni í gær en er ekki enþá búin að fá útur því. Vonandi að ég sé ekki með einhvern sjúkdóm hehe. Kallinn kom í land 16. október og var mjög fínt að hafa hann heima þó að hann hafi ekki verið lengi heima. Hann bauð mér á hótel á föstudeginum og var það mjög fínt þrátt fyrir það að það var alltaf verið að hringja í okkur og svo um 3 leytið var bankað á dyrnar hjá okkur og sagt að vinur okkar væri í lobbýinu með löggunni. Og Víðir hleypur fram og þá voru þetta einhver mistök það var engin að biðja um okkur. Okkur fannst það líka frekar skrýtið þar sem að engin vissi af okkur nema Anna því hún var að passa Hákon.Það gengur alveg rosalega vel hjá okkur öllum í þessu koti. Ég er að spá í að baka fyrir jólin um helgina eða gera jólahreingerninguna eða jólakortin og föndra fyrir jólin. Ef ég verð hress. Ég er ekkert smá spennt yfir jólunum og langar að byrja á öllu núna. En ég get ekki gert nokkur skapaðan hlut vegna þess að ég er veik, ég gat nú tekið til í einum skápnum í eldhúsinu í gær en hélt að ég myndi líða útaf vegna verkja þegar ég var byrjuð.
Núna ætla ég að fara að horfa í tv og slaka á ég er alveg að drepast.
Þangað til næst kveður nunnan í kút.
09. október 2008 klukkan 14:08
Já ég er búin að vera svo dugleg að það hálfa væri nóg. Ég byrjaði á því helgina þegar laufskálarétt var þá málaði ég herbergið sem ég var í því að Hákon er komin þangað núna, og hjálpaði mömmu að skúra niðrá mörk klukkan sex bæði á laugardeiginum og sunnudeginum og hélt áfram að mála þegar ég kom heim um átta leytið. Ég tók svo rúmið hans Hákonar í sundur því ég ætlaði að vera svo mikil hetja og reyna að taka það í tveimur hlutum en það var ekki að ganga alveg upp þannig að ég tók það í sundur og setti það svo saman aftur inní nýja herbergið sem Hákon er komin í. Haha það gekk svoldið brösulega og tókst mér að stórslasa mig í munninum með skrúfjárninu( ekki veit ég alveg hvernig mér tóks það en það tókst hjá mér) svo núna er ég að mála litla herbergið sem Hákon var í og er ég búin að vera heila eilífð að mála það því ég er ekki að nenna að mála lengur. En það þarf að mála það því það var hvítt fyrir ofan miðju en dökkblátt fyrir neðan miðju (spiderman herbergi) og svo voru fullt af spiderman límmiðum og borði og var svoldið bras að ná þessum skollans borða af veggnum. Ég á nú bara eina umferð eftir í litla herberginu og þá verð ég mjög glöð manneskja að vísu þá ætla ég að mála baðið líka þannig að ég þetta er ekki alveg búið, svo seinna ætla ég að mála einn vegg í stóra herberginu sem við förum í en ég er ekki alveg í stuði fyrir það núna.Ég er að fara á árshátíð á laugardaginn næsta og ætlar elsku mamma að koma og passa fyrir mig, skrýtið að þurfa að fá konuna alla leið frá Reykjavík til að koma og passa fyrir mann, maður var nú bara vanur því að hún væri alltaf hérna til að passa fyrir mann en ekki lengur nú er konan bara flutt til höfuðborgarinnar og er maður svona enþá að venjast þeirri tilfinningu að hún skuli vera farin frá manni. Fanney ætlar að koma með mér á árshátíðina og verður svaka fjör hjá okkur gellunum í okkar fínasta pússi.Hákon er búin að vera veikur núna síðan á þriðjudag og fór ég með hann til læknis áðan og var hann sendur í blóðprufu og myndartöku. Maður er alveg að morkna yfir því að komast ekki í vinnunna og aðeins út. Við fórum að vísu í gærkvöldi og buðum múttu út að borða á Austur indía félaginu því konan er búin að vera edrú í eitt ár og erum við ekkert smá stolt af kjellunni, við gáfum henni líka geðveikt flotta eyrnalokka og var hún alveg í skýjunum yfir þeim.
Ekki næstu heldur helgina eftir það þá er litli bróðir minn að fara að keppa í mótorkross hérna á langasandi og verð ég manna fremst til að fylgjast með kvikindinu þeytast um á mótorfák.
Jæja gott fólk nú ætla ég að fara og fá mér kaffi aðeins til að ylja mér um kroppinn og fara svo að mála því ég á svo lítið eftir. Vibbý.
Hastala vista baby.
21. september 2008 klukkan 17:12
Jæja nú ætla ég aðeins að blogga. Það er mikið búið að ske síðan síðast. Ég er komin með mann og heitir hann Kristján Víðir og er algjör rugludallur eins og ég þannig að við náum mjög vel saman. Við hittumst á menningarnótt og erum við búin að vera saman síðan. En núna er hann farin á sjó og er svoldið skrýtið að geta ekki talað við hann á hverjum degi. Við ætlum að leigja íbúðina hennar mömmu þegar hún fer í bæinn og hlakkar okkur mikið til að fá að vera útaf fyrir okkur.Ég er komin í aðra vinnu og er hún ágæt bara, ég þarf að vísu að vakna um 6 á morgnana og var það ekkert smá erfitt sérstaklega líka þegar Víðir fékk að sofa út.Ég og Hákon vorum í bænum um helgina hjá pabba gamla sem er bæ thó vei með Víði á sjó. Ég kíkti aðeins út á laugardeginum með Önnu og hennar manni við fórum nú bara og fengum okkur einn öl og fórum svo heim til þeirra í litlu fínu íbúðina sem þau eru að gera allt við. Og sátum við þar og spjölluðum og drukkum rauðvín svo skrakklappaði ég heim því íbúðinn sem pabbi var í er 10 skrefum frá Önnu (mjög gott).Ég ætla ekki á laufskálaréttar ballið ég ætla að vera heima einsog góðri sómakonu sæmir þegar maðurinn hennar er að vinna fyrir heimilinu. Nei djók ég er engan vegin að nenna að fara norður á fyllerí og vera svo ógeðslega þunn fram á miðvikudag. Líka það er ekki gaman að byrja að vinna svona snemma eftir fyllerí. Ég hljóma einsog gömul kona,hehe ekki gott mál.Jæja nú ætla ég að fara að velta fyrir mér hvað skuli hafa í matinn.
04. september 2008 klukkan 17:19
17. júlí 2008 klukkan 19:36
27. júní 2008 klukkan 22:11
Afhverju hringja alltaf gaurarnir sem maður er svona eiginlega hálfpartin búin að gleyma en ekki þeir sem maður vill að hringi í sig? Þetta er mér mikil ráðgáta. Einsog til dæmis einn gaur sem ég var að "deita" og hef ekkert heyrt í honum í svoldin tíma, og langar geggjað að heyra í. Svo í nótt þá hringdi einn gaur í mig sem ég hef ekki heyrtí í langan tíma hringir alltí einu í mig og vill endilega hitta mig. KOMMMMMON. Og svo er ég svo feimin að ég þori ekki að hringja í hinn gaurinn eða senda honum sms. Ég og vinkona mín vorum einmitt að ræða þetta um daginn, að það er svona eiginlega alltí lagi að gaurar séu alltaf að hringja í mann en manni finnst ekki alltí lagi að hringja í þá, hvað er það. Afhverju get ég ekki bara tekið upp síman og hringt og allt verður í gúddí?? Ég er svo mikill holta kjúklingur að það hálfa væri nú alveg sæmilega gott.En nóg um það ég fór norður 13.júní og var í viku í sumarbústaðnum mínum í fljótunum að vinna og veiða og var það ógeðslega næs, en auðvitað kíkti ég á djammið á króknum ú laugardaginn síðasta og skemmti ég mér alveg konunglega og það var ekki ráðist á mig vippí fyrir því.Prinsinn minn varð 6.ára á sunnudaginn síðast og vúfff hvað mér fannst ég verða gömul, hann er að fara að byrja í skóla í haust, hann hætti svo í leikskólanum í dag og er það geðveikt skrýtið að þurfa ekki að fara með hann á leikskólann og hvað þá að borga leikskólagjöldin, það á svo að lækka leikskólagjöldin, típíst akkúrat þegar minn hættr í leikskóla. En það skiptir ekki máli því í haust þarf ég að borga helmingi minna í skóladagvistina en ég gerði þegar hann var á leikskóla. JESSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS loksins fær maður þá einhverja peninga meninga um mánaðarmót.En núna sit ég og horfi á the biggest loser( vá ég á mér ekkert líf)Jæja er þetta ekki komið gott
10. júní 2008 klukkan 23:11
Já krakkar mínir ég elska þegar sumarið kemur þá er ég svo full af orku og veit ekkert hvernig ég á að losa mig við hana, nema hvað ég fer í fótbolta með krökkunum í leikskólanum á hverjum degi oft á dag, svo kem ég bara heim og verð að gera eithvað ensog tildæmis í gær og í dag þá ætlaði ég að setja flottu álfelgurnar undir bílinn minn en þá gat bróðir minn ekki hjálpað mér(til hvers á ég bræður, ég bara spyr) en þessi elska sagði nú að ég gæti bara gert þetta sjálf( ég veit alveg að ég get þetta sjálf en komon ég er svo hrædd um að ég sé að keyra og sé svo bara annað afturdekkið keyra framhjá mér). Svo í dag ætlaði ég að hjóla í átvr til að kaupa í léttvínspottinn í vinnunni en þá bara vantaði hjólið
þannig að ég þurfti að keyra mér ekki til mikillar ánægju. Hefði labbað en það var verið að fara að loka. En ég ætla að setja felgurnar undir á morgun ef bíllinn fer ekki á verkstæðið því ég þarf víst að fá nýja rúðu í drossíuna mína, guð ég verð svo mikil gella á flottu felgunum mínum með nýja rúðu í bílnum mínum, úlalalalalala gellan.Ég fór á djammið með vinkonum mínum á föstudaginn og hittum við tvo gullfallega stráka og ég og önnur vinkona mín hittum þá svo aftur á laugardaginn og ó mæ god...... Gef ekkert meir upp núna en kannski seinna elskurnar mínar, en nú ætla ég að fara að skrúbba af mér skítinn eftir allann fótboltan í dag, Síjú
05. júní 2008 klukkan 17:08
Your birthday means that you are an early morning person.
You like water and water sports, and your best colors are blue and gray. You are artistic and love to express yourself in many different ways. While you tend to be more of an introverted person, that does not mean you sit at home. On the contrary, you have the best ideas when it comes to going places and finding things to do. You are very innovative and excel at creativity.